- Búðu til teikningu af skipulagi hluta í gámnum þínum svo þeir finnist auðveldlega.
- Það sem þú ekki raðar í hillur skaltu setja í sterka pappakassa/geymslukassa.
- Skoðaðu kosti þess að tryggja eignir þínar áður en þær eru fluttar í gáminn.
- Gott er að velja geymslukassa af af sömu stærð til að þeir staflist vel.
- Merktu alla kassa vel, sérstaklega þá sem eru með viðkvæmum hlutum í.
- Kæliskápar/frystar verða að vera afþýddir og þurrir, látið hurðir vera opnar og tryggið að þær haldist opnar.
- Ekki ætti að geyma blauta hluti, það sem fer blautt inn í gám er líklegt til að skemma út frá sér.
- Dýnur, sófar o.fl. ættu að vera klæddir með plasti.
- Taktu stóra hluti í sundur til að spara pláss.
- Rafbúnaður eins og sjónvörp, hljómtæki o.s.frv. ætti að pakka í umbúðir.
Ekki hika við við að hafa samband ef þig vantar fleiri ráð.